Um Kaktus
Kaktus stendur fyrir tímasparnað og skilvirkni. Tilgangur okkar er að fá að starfa með fólki sem hefur ástríðu fyrir því sem það er að gera. Á stað þar sem metnaður, hugmyndir og framtíðarsýn mætast.
Teymið
Þéttur hópur sérfræðinga

Guðmundur Sigursteinn Jónsson
Stofnandi/Stjórnandi

Orri Arnarsson
Stofnandi/Tæknistjóri

Björgvin Ásgeirsson
Forritari

Róbert Stefánsson
Vefstjóri

Sveinbjörn Jóhannesson
Forritari

Þorsteinn Sigurðsson
Forritari


Stafrænar vörur Kaktus
Rafrænt útibú fyrir apótekið þitt. Nú er hægt að versla öll lyf á netinu. Þér til þæginda!
Netverslunarkerfi fyrir framsækin fyrirtæki. Byggir á WooCommerce með hauslausum arkitektúr.
Sérhæfðar Mínar síður kerfi fyrir fyrir félagsmenn. Stafræn umbreyting stéttarfélaga er hafin.
Kaktus sérhæfir sig í hugbúnaðarsmíði

Veflausnir
Hágæða veflausnir sem vaxa með þér.

Netverslanir
Söludrifnar og snjallar netverslanir

Vefkerfi
Sérsmíðuð vefkerfi, sniðin að þínum þörfum.

Ráðgjöf & frumgreiningar
Val á kerfum, þarfagreiningar, áhættu- og óvissugreiningar, rýni á kóðastrúktúr.

Hönnun / UX / UI
Viðmótshönnun, notendamiðuð hönnun, hönnunarkerfi og hönnun fyrir samfélagsmiðla.

Vinnustofur
Hönnunarsprettir, flokkunaræfingar, hugarflugsfundir, stefnumótandi vinnustofur með áherslu á stafræna umbreytingu.

Hvernig þú vinnur með okkur
Fyrirfram ákveðið verð
Kaktus gefur fyrirfram ákveðin verð (tilboð) ef verkefnakröfur- & þarfir eru nógu vel skilgreindar. Verkefnastærð af þessari samningatýpu fer öllu jafna ekki yfir þrjá mánuði í vinnu hjá einum hugbúnaðarsérfræðingi.
Verkáætlun
Við gefum verkáætlanir þegar erfitt reynist að meta umfang vegna óvissuþátta. Besta leiðin er að setja skýrar vörður á milli stærri verkþátta og byrja á frumgreiningum. Allt gert til þess að tryggja fulla stjórn á verkefninu.
Þjónustusamningur
Sérfræðingar Kaktus eru hér til þjónustu reiðubúin. Teymi af verkefnastjórnum, hönnuðum og forriturum. Fjöldi þjónustutíma eru valdir útfrá þörfum hvers og eins. Þessi leið er fullkomin með langtíma samstarf í huga.
Ráðgjöf
Við bjóðum upp á ráðgjöf á sviði frumgreininga, hönnunar, forritunar, gæða- og verkefnastýringar. Smíðum flæðirit og gefum ráðgjöf varðandi arkitektúr, auðgun gagna og uppbygginu kerfa. Hugmyndaauðgi er okkar besta vopn!